Tai Chi/Kung Fu: Þetta er ofboðslega falleg leikfimi. Hentar öllum aldurshópum, ungum sem öldnum. Æfingarnar mýkja líkamann, vinna með innri orku. Einkennist af afslöppuðum og mjúkum hreyfingum sem þjálfa í senn líkama og huga. Tai Chi hefur góð áhrif á huga og líkama og er hjartastyrkjandi auk þess að bæta miðtaugakerfið, öndun og meltingu. Tai Chi getur líka hjálpað þeim sem glíma við svefnleysi. Fólk á öllum aldri getur stundað Tai Chi og það er aldrei of seint að byrja!